| Svona þvær maður hárið
1. Hér koma góð ráð fyrir þá sem vilja fá sem mest út úr hárþvottinum. Til að byrja með þarftu að vera búin/n að greiða hárið með grófum bursta og greiða mjúklega í gegnum það til að fjarlægja allar flækjur; hárið á alltaf að vera þurrt þegar þetta er gert, þ.e.a.s. áður en þú þværð það.
2. Næst á að bleyta hárið með volgu vatni og setja dálítið sjampó rétt ofan í miðju lófans. Nudda lófunum saman því þá hitarðu sjampóið sem gerir það að verkum að auðveldara er að nudda því í hárið og það dreifist betur.
3. Nuddaðu sjampóið sirka ein matskeið inn í hárið með fingurgómunum, best er að nudda þéttingsfast í hringi til að minnka líkur á flækjum og auka einnig blóðflæði höfuðleðursins. Byrja efst frá enninu og færa ykkur rólega niður eftir hnakkanum.
4.Hreinsun Strjúkið lófunum yfir allt hárið til að fjarlægja mestu froðuna. Skolið síðan endurtakið ef hárið er feitt eða mikið að hársnytiefnum í hárinu. Þegar vatnið sem er að renna í gegnum hárið er orðið tært aftur ætti allt sjampóið að vera komið úr, Skola þarf sjampóið vel úr til að næringin geti unnið vel á hárinu, þ.e.a.s.ef hún er notuð. Skola þarf einnig næringuna vel úr hárinu til að hún þyngi ekki hárið, hárið á alltaf að vera hálf stamt eftir þvott. Gott er að nota næringar (leave in spray-næringu) sem má skilja eftir í hárinu til að byggja það upp, en þá þarf ekki að nota næringu við þvott. Alltaf að nota góð efni í hárið sem vinna vel með því, bæði með að byggja það upp með raka og næra það vel. Þá er gott að vefja mjúku handklæði utan um hárið. Takið mesta rakann með því að nudda handklæðinu þétt að hárinu, dempa þannig mesta rakann í burt, ekki þurrka harkalega. Svo er að greiða í gegnum hárið mjúklega með góðum grófum bursta.
|