kíktu á ráðgjafahornið
Líflaust hár
Líflaust hár getur stafað út frá veikindum, vöðvabólgu, slæmu matarræði streitu og röngu vali á hársnyrtiefnum. Llíflaust hár getur jafnvel verið afleiðing veðráttu eða vegna hormónatruflana í líkamanum eða eftir barneignir. Líflaust hár vantar oft þykkt og gljáa hægt er a ð velja sjampó sem gefa fyllingu. Einnig eru komin á markaðinn ýmis góð hársnyrtiefni sem þykkja hárið. Ég vil ráðleggja þeim sem finna fyrir slíku að taka inn vítamín fyrir hár og neglur og þaratöflur eða B vítamín. Vænlegast er að fara á hárnyrtistofu og fá góða djúpnæringu og gott höfuðnudd til að örva blóðstreymi til hárrótanna.
Marktæk ráð.:Það er gott að setja glansskol í hárið því það gefur hárinu meiri þykkt, fyllingu og gljáa en mikilvægt er að passa að velja lit sem er næst háralit hvers og eins. Ekki er gott að nota heimaliti því ef viðkomandi hefur fingert þunnt hár ætti sá hinn sami að leita frekar til fagaðila. Svo er gott ráð er að nota shampó sem eru mild og ekki nota of heitt vatn þegar hárið er þvegið.
:Hvað skal varast
Vertu viss um að hárvörurnar sem þú notar innihaldi ekki glyserine (olíusætu) eða silicone og einnig er gott að hafa í huga að nudda ekki shampóinu fast heldur með léttum hringlaga hreyfingum. Skola síðan hárið með frekar köldu vatni, um að gera að setja froðu eða blásturvökva í hárið því það gefur áberandi mikla fyllingu. Svo að lokum er gott að nota svokallaðar 'leave in' næringu því hún verndar hárið fyrir veðri, hitablæstri og sléttujárnum.
Svo er um að gera að velja ávallt klippingu sem gefur hárinu lyftingu og gerir það líflegra.
Kveðja, Helena Hólm



